Innleiðing á Byrjendalæsi – Viðhorf og reynsla kennara

17.12.2013
Eygló Björnsdóttir, María Steingrímsdóttir og Sigríður Margrét Sigurðardóttir
Innleiðing á Byrjendalæsi – Viðhorf og reynsla kennara

Markmið rannsóknarinnar sem hér er kynnt er að greina reynslu kennara af innleiðingu á læsisaðferðinni Byrjendalæsi samkvæmt starfsþróunarlíkani, kanna viðhorf kennaranna í því sambandi og skoða hvaða áhrif þátttaka hefur haft á starfsþroska þeirra. Ráðgjafar um aðferðina við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA) söfnuðu matsgögnum um mat kennara á aðferðinni og líkaninu. Í rannsókninni er byggt á gögnum frá 2009 til 2012, bæði einstaklingsmati og hópmati. Niðurstöður benda til ánægju með aðferðina og starfsþróunarlíkanið sem henni fylgir. Kennarar telja vel haldið utan um innleiðinguna af hálfu MSHA og að það auðveldi þeim að tileinka sér aðferðina. Hins vegar koma einnig fram vísbendingar um óöryggi í hópi kennaranna. Þeir kalla eftir meiri stuðningi við framkvæmd aðferðarinnar í starfi með nemendum.