Höfundar: Svanborg R. Jónsdóttir og Hafdís Guðjónsdóttir.
Mikilvægi skapandi hugsunar kemur fram í ákalli samtímans eftir nýsköpun. Hér er sagt frá starfendarannsókn átta list- og verkgreinakennara í samstarfi við háskólakennara sem stýrði rannsókninni. Niðurstöður sýndu að sú menning sem kennarar leituðust við að móta einkenndist meðal annars af því að kenna grunnvinnubrögð í bland við frelsi og sköpun, góðar kveikjur, tilraunir og skapandi samtöl. Með þátttöku í rannsókninni sýndu kennarar hvernig er hægt að vinna hefðbundin verkefni á skapandi hátt um leið og þess er gætt að kröfur aðalnámskrár séu uppfylltar.
Útgáfudagur: 21. 4. 2021