Reynsla kennara og annars fagfólks grunnskóla af aukinni áherslu á velferð nemenda með námserfiðleika

Höfundar: Sigrún Harðardóttir, Ingibjörg Karlsdóttir og Margaret Anne Johnson.

Velferð og farsæl námsframvinda nemenda hvílir að miklu leyti á herðum grunnskóla og því er mikilvægt að beina sjónum að því hvað þarf til að gera starfsfólki kleift að mæta fjölbreytilegum þörfum þeirra. Hér er sagt frá niðurstöðum rannsóknar á upplifun og reynslu kennara og annars fagfólks af kennslu og stuðningi við nemendur með námserfiðleika í grunnskólum sem hafa verið greindir með ADHD, einhverfu, almenna og sértæka námserfiðleika og tourette-heilkenni, auk nemenda sem glíma við tilfinninga- og félagslega erfiðleika. Rannsóknin er hluti af stærra rannsóknarverkefni um stuðning við grunnskólanemendur með námserfiðleika. Markmið rannsóknar var að kanna reynslu kennara og annars fagfólks af þeim áskorunum sem fylgja kennslu og stuðningi við nemendur með námserfiðleika. Niðurstöður sýna að viðmælendur upplifðu ýmsar áskoranir sem fylgdu því að takast á við fjölbreytileikann í nemendahópnum í samræmi við ákvæði laga um nám og velferð nemenda. Auk þess kom fram að skortur er á úrræðum og aðstoð fagfólks með fjölbreytta sérhæfingu innan skóla.