Skipulag og eftirfylgni stuðnings við lestur á yngsta stigi grunnskóla séð með augum læsisfræðinga

Höfundar: Guðmundur Engilbertsson og Fjóla Björk Karlsdóttir.

Í greininni er fjallað um niðurstöður viðtala við starfandi læsisfræðinga þar sem reynt var að fá innsýn í skipulag við lestrarnám nemenda sem þurfa á auknum stuðningi að halda í skólum sem búa að góðri fagþekkingu í lestrarfræðum. Hugað var sérstaklega að stefnumörkun og aðgerðaáætlunum er varða kennslu, hvernig mati væri háttað, hvers kyns matstæki væru notuð og hvernig stuðningi við nemendur og eftirfylgni í tengslum við hann væri hagað. Helstu niðurstöður voru þær að reglulega er skimað á fyrstu árum í grunnskóla en ítarleg greining á lestrarvanda á sér ekki stað fyrr en í þriðja bekk.

Útgáfudagur: 12.8.2024

Lesa grein